18.3.2007 | 21:05
Gamlar vísur
Stöðum-Jarla stórvirkur
stýrir prýðilega,
Sigtryggur er sambrýndur um Sigtrygg Björnsson á Jarlsstöðum
alveg hræðilega.
Heim að Garði hugur snýr
hressingu þarf hann núna,
ágætlega Baldvin býr um Baldvin Sigurðsson í Garði
brennivíns við trúna.
Nes hefir lengi Þorgrím þreytt
því má enginn varna,
hefur þó ei hugsað neitt um Þorgrím Pétursson í Nesi
hann mun fjölgun barna.
Að Vilhjálmi vísu ég sný
vers á Hafralækinn,
skuldaflækjum öllum í um Vilhjálm Jónasson á Hafralæk
undarlega frækinn.
Hér eru fjórar vísur í viðbót um bændur í Aðaldal um aldamótin 1900, og smá upplýsingar um þá,
Sigtryggur Björnsson f.1873 d.1940 bóndi á Jarlsstöðum frá 1898, afi bænda sem þar búa núna Sigurðar og Einars Jónssona, Baldvin Sigurðsson f.1837 d.1915 bóndi og smáskammtalæknir í Garði afi ábúanda þar Guðnýjar Benediktsdóttur, Þorgrímur Pétursson f.1843 d.1923 bóndi í Nesi 1867-1919 afi Steingríms í Nesi bónda þar, hann lést 1968, Vilhjálmur Jónasson f.1862 d.1939 bóndi á Hafralæk 1889-1934 faðir Konráðs bónda þar og rithöfundar sem bjó með föður sínum 1910-1930 og flutti þá til Akureyrar Konráð var faðir Gísla sem lengi var forstjóri ÚA á Akureyri.
Halli
336 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Niðjatal
- Niðjatal Maríu og Ingólfs í Húsabakka
- Niðjatal Guðmundar Jóhannessonar bónda á Grýtu og Svertingsstöðum
- Niðjatal Kristjáns Hallssonar bónda á Laugarhóli og Ystahvammsgerði
- Niðjatal Jóns Einarssonar bónda í Svartárkoti og Björgum, fór til Brasilíu
- Niðjatal Þórðar Jóhannessonar í Presthvammi og Hrauni
- Niðjatal Kristjáns Jenssonar bónda í Fossseli
- Niðjatal Þorláks Jónssonar bónda í Torfunesi
- Niðjatal Jónasar Davíðssonar bónda á Bringu í Eyjafirði
- Niðjatal Árna Frímanns Kristjánssonar bónda í Holtakoti í Kinn og Saltvík í Reykjahverfi
- Niðjatal Guðmundar Guðnasonar bónda í Grímshúsum
- Niðjatal Bergvins Þórðarsonar bónda í Húsabakka og Brekku
- Niðjatal Indriða Kristjánssonar bónda í Skriðuseli
- Niðjatal Jóns Ólafssonar frá Mýrarlóni
- Niðjatal Guðna Jónssonar bónda í Sýrnesi og Grímshúsum
- Niðjatal Evlalíu Guðmundsdóttur
Fréttablöð
Eldri færslur
- Júní 2011
- Maí 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- Júlí 2010
- Apríl 2010
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Bloggvinir
- Aðalsteinn Bjarnason
- Agný
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Benedikt Sigurðarson
- Bjarni Harðarson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Svansson
- Brynja skordal
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Elfur Logadóttir
- Halla Signý Kristjánsdóttir
- Hallgrímur Guðmundsson
- Hermann Jónsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Birgisson
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Valur Jensson
- Karl Hreiðarsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Laugar
- Lára Stefánsdóttir
- Ólöf Brynja Jónsdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sóley Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Stefánsson
- Sverrir Stormsker
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Þorleifur Ágústsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórir Kjartansson
Myndaalbúm
Nýjustu færslurnar
- Pæling I
- Þóra þegir, Þórður Snær kvartar undan skipstjóranum
- Kínverska leyndin er ekki gagnleg
- Trump sjálfum sér líkur
- Eyjólfur fékk ráðherrastól
- Bæn dagsins...
- Hvernig ætti að vera hægt að bjarga bandarísku þjóðinni undan gamalli helstefnumenningu? Þetta er tízkubóla og annað ekki
- Var Íslandi hótað?
- Sjálfstraust Pæling III-IV
- Þegar Elítujón veit að Almúgajón er "hugur slökkt"
Athugasemdir
Sæll Halli. Ég hef alveg rosalega gaman af þessum gömlu vísum og ættfræðinni þinni. Langamma mín Sigríður og langafi Baldvin Friðlaugs. sem byggðu Hveravelli og byrjuðu með ylrækt þar, voru líka skáldmælt. Ljóð þeirra komu þó aldrei út á bók, en föðurbróðir minn einn, tók saman og prentaði í litla bók, þau ljóð sem hann gat haft upp á, og gaf okkur afkomendum þeirra þannig kost á að eignast ljóðin. Ég ætla að skrifa hérna inn eitt ljóð eftir Sigríði, finnst mér þetta mjög fallegt ljóð:
HVAÐ DVELUR VORIÐ??
Í gærdag kom apríl í alhvítum hjúp, en enginn til vorferða sér. Hvað dvelur það, Guð minn- er leið þess svo löng, sem liggur til Íslands frá þér.
Við norðursins börn þráum auð þess og yl, og öll okkar skammdegesraun. er ár eftir ár bæði grafi og gleymd, fyrir gleðilegt sumar í laun.
Ásdís Sigurðardóttir, 19.3.2007 kl. 13:11
hér er heimasíða móðurættarinna minna
http://www.internet.is/aettarmotid/
Ásdís Sigurðardóttir, 19.3.2007 kl. 13:57
þakka þér fyrir þetta Ásdís þetta er fallegar vísur og það verður gaman að skoða ættfræðisíðuna þína
kveðja Halli
Hallgrímur Óli Helgason, 19.3.2007 kl. 16:23
þetta er reyndar síða sem frændi minn gerði í tilefni af ættarmóti sem haldið ar í desember s.l.
Ásdís Sigurðardóttir, 19.3.2007 kl. 19:04
þakka þér fyrir það Ásdís allt er vel þegið í ættfræðigrúskið hjá mér, eftir smá skoðun hjá mér sá ég að mig vantaði talsvert af þessu fólki.
Halli
Hallgrímur Óli Helgason, 19.3.2007 kl. 19:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.