Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

MYNDIR

Skýstrókur og regnbogi

MYND

NN

NIÐJATAL

Enn eitt niðjatalið er komið hjá mér, það er niðjatal Jónasar Davíðssonar bónda í Bringu í Eyjafirði, það telur hjá mér 470 niðja, Jónína Þórey langamma var elst barna Jónasar og konu hans Halldóru, og kemur niðjatal hennar líka í niðjatali Guðna Jónssonar en Jónína var gift Guðmundi Guðnasyni langafa.

kveðja Halli


NIÐJATAL

Niðjatal Þórðar Jóhannessonar er komið hjá mér, Bergvin langafi var yngstur barna hans og er niðjatal hans einnig í niðjatali Jóns Einarssonar sem var faðir Elínborgar konu Bergvins, niðjar Þórðar eru einungis frá Jóni og Bergvin, Þórður átti tvö önnur börn er ekki áttu niðja, niðjar Jóns eru á þriðja hundrað og Bergvins á sjöunda hundrað. Þórður Jóhannesson var bóndi í Presthvammi og Hrauni í Aðaldal, bróðir Þórðar var Jóhannes, afi Konráðs sem var flugmaður, flugkennari, flugvallarstjóri í Winnipeg, og í sigurliði ísknattleiksliðsins Fálkanna sem varð ólympíumeistari í Hollandi 1920, í því liði voru flestallir íslenskir leikmenn.

NIÐJATAL

Er kominn með nýtt niðjatal langalangafa og langalangömmu, Jóns Einarssonar bónda í Svartárkoti í Bárðardal og Björgum í Kinn, flutti til Brasilíu 1863 og konu hans Steinunnar Jónsdóttur húsfreyja er lést 1860, talsvert af niðjum þeirra er í Brasilíu og Kanada sem ég hef ekki nema að litlu leyti, meirihlutinn af niðjum Jóns og Steinunnar eru út af Elínborgu og manni hennar Bergvini Þórðarsyni sem ég var með á síðunni og hverfur það niðjatal af síðunni þar sem það kemur allt fram í þessu niðjatali.

kveðja Halli


NIÐJATAL

Niðjatal Guðna Jónssonar langalangafa míns er nú komið inn hjá mér, smá upplýsingar um hann, Guðni bjó tvö ár á Hlíðarhaga á Norðurfjöllum, 1861-63, fyrra árið með Eyjólfi Benjamínssyni og hið síðara með Bergvini Jónatanssyni. Voru þeir frumbýlingar þar. Þetta var á gömlum seltóftum frá Reykjahlíð við Eilífsvötn. Fluttist að Garði 1863. Var næsta áratuginn í vistum og húsmennsku í Aðaldal, eftirsóttur verkmaður, ,,áhlaupamaður til vinnubragða og lá flest verklegt í augum uppi, laginn við smíðar, laginn á hesti, ör og bráðlyndur nokkuð og þó lundgóður"(ÆÞ bls.158 IV). Bóndi í Sýrnesi í Aðaldal 1873-1889 og í Grímshúsum í Aðaldal 1889-1901.

NIÐJATAL

Er búin að setja inn tvö ný niðjatöl á síðuna hjá mér, tenglar vinstra megin á síðunni, og tók út niðjatal Árna langafa, þar sem ég setti inn niðjatal föður hans Kristjáns Jenssonar Buch og konu hans Kristjönu Árnadóttur, telur það nú tæpa átta hundruð niðja, Kristján Jensson og Kristjana Árnadóttir kona hans bjuggu í Fossseli í Reykjadal 1873-1903, einnig hef ég sett inn niðjatal Þorláks Jónssonar langalangafa míns og konu hans Þuríðar Benjamínsdóttur, þau voru foreldrar Sigurbjargar Þorláksdóttur langömmu, konu Árna langafa, Þorlákur og Þuríður bjuggu í Garðshorni og Torfunesi í Kinn, þessi niðjatöl er ég nýbúin að yfirfara og vona ég að þau séu sem réttust, en alltaf vilja slæðast inn villur og þeir sem lesa þetta og rekast á einhverjar villur endilega sendið mér þá athugasemd, þetta eru niðjatöl tveggja langalangafa minna af átta, niðjatöl hinna sex koma svona smá saman, verð kannske búin að yfirfara þetta fyrir vorið.

 

kveðja Halli


BRANDARI

Nonni litli opnaði dyrnar að hjónaherberginu og sá að pabbi lá á bakinu og mamma hossaði sér uppi á honum. Um leið og mamma kom auga á Nonna hætti hún, klæddi sig og fór fram. Þegar Nonni sá hana sagði hann. Hvað voruð þið pabbi eiginlega að gera ?
Ja, þú veist hvað hann pabbi þinn hefur stóran maga... og ég þarf stundum að hjálpa honum við að fletja hann niður, sagði mamma.
Það er algjör tímasóun hjá þér  sagði Nonni litli og brosti.
 Af hverju segirðu það,  spurði mamma ringluð.
Af því að alltaf þegar þú ferð í Kringluna á fimmtudögum þá kemur konan í næsta húsi, fer niður á hnén og blæs pabba upp aftur......

ÆTTFRÆÐIGRÚSK

Smá ættfræðigrúsk hjá mér, vonandi vekur þetta einhverjar spurningar hjá

þeim er þetta lesa, og þá er bara að gera athugasemdir.

 

Helgi Ásmundsson f.1768, d.1855 var ættfaðir Skútustaðaættar, hann var

bróðir Einar Ásmundssonar f.1779, d.1842 sem var afi Elínborgar Jónsdóttur

sem var langamma mín, Helgi var þrígiftur og eignaðist 19 börn með þeim og

áttu a.m.k. 16 þeirra niðja,  samkvæmt mínu ættfræðigrúski er ég með skráða

niðja Helga Ásmundssonar rúmlega níuþúsund, konur Helga voru Kristín

Einarsdóttir f.1763, d.1797 og áttu þau tvö börn, önnur kona Helga var Þuríður

Árnadóttir f.1767, d.1821 og áttu þau sjö börn, þriðja kona Helga var Helga

Sigmundsdóttir f.1790, d.1857 og áttu þau tíu börn, Helgi varð ekki bóndi fyrr

en um 1798 á Skútustöðum er hann giftist Þuríði Árnadóttir annari konu sinni,

hún var systir Jóhannesar Árnasonar f.1771, d.1860 sem var afi Dýrleifar

sem var langamma mín, Jóhannes var bóndi á Grenivík og Grýtubakka og

var meðal annars forfaðir Kristjáns Eldjárn fyrrv. forseta, en aftur að Þuríði á

Skútustöðum, hún var áður gift Ara Ólafssyni bónda og smið á Skútustöðum f.1738,

d.1797, og áttu þau níu börn, Ari var áður giftur Maríu Aradóttur f.1740, d.1784,

þau Ari og María voru langalangafi og langalangamma Sigurbjargar

Þorláksdóttur f.1868, d.1952 sem var langamma mín, afi Maríu Aradóttur 

og Ara Ólafssonar manns hennar en þau voru systkynabörn, var

Þorleifur Skaftason prestur og prófastur í Múla í Aðaladal 1724-1748, Ari á

Skútustöðum var góður smiður, meðal annars smíðaði hann predikunarstól

1791 sem enn stendur í Þóroddsstaðakirkju í Kinn.

 

Halli


SIGURLAUG

Sigurlaug Guðlaugsdóttir var fædd 1.mars 1812 í Ytrineslöndum í Mývatnssveit, dáin 27.des. 1899, hún var húsfreyja á Helluvaði, Flatey á Skjálfanda og víðar, hún var jörðuð í Brettingsstaðakirkjugarði á Flateyjardal 7.jan. 1900. Sigurlaug var fjórgift og átti hún sjö börn, fimm með Jóni Jónssyni f.1807 d.1846 og tvö með Jóhannesi Árnasyni f.1825 d.1848, meðal barna hennar var Sigurður Jónsson f.1833 d.1922 bóndi á Hofsstöðum í Mývatnssveit hann var giftur hálfsystur  Sigurlaugar móður sinnar og hét hún líka Sigurlaug Guðlaugsdóttir f.1833 d.1910 og voru þau hjón t.d. langafi og langamma Jóns Þorlákssonar á Skútustöðum og Helga Ásmundssonar í Laugaseli. Guðni Jónsson f.1837 bóndi í Sýrnesi og Grímshúsum var einnig sonur Sigurlaugar og var hann afi Hallgríms Óla í Grímshúsum. Kristján Jónsson f.1839 bóndi á Hólmavaði var einnig sonur hennar, hann var afi Stjána á Hólmavaði. Eldri dóttir Sigurlaugar hét Sigríður Kristín Jóhannesdóttir f.1847 d.1935 húsfreyja í Skörðum, Kvíslarhóli og Tungugerði, hún meðal annars amma Þórólfs Guðnasonar bónda og hreppstjóra í Lundi í Fnjóskadal og Sigríðar og Fanneyjar Geirsdætra í Hringveri á Tjörnesi, yngri dóttir Sigurlaugar var Jóhanna Jónína Jóhannesdóttir f.1849, hún var meðal annars móðir Sigmars Jóhannessonar bónda á Mógili á Svalbarðsströnd  og langamma Sigrúnar Þorgilsdóttur sem var gift Sigga Lassa.

Þriðji maður Sigurlaugar var Indriði Ólafsson f.1796 d.1860, var bóndi í Garði í Aðaldal áður giftur Hólmfríði Jónasdóttur d.1855 og áttu þau sjö börn, fjórði maður Sigurlaugar var Jón Ingjaldsson f.1836 í Reykjavík, bóndi og sjómaður í Krosshúsum í Flatey d.1912 meðal barna hans var Ingjaldur Hermann útvegsbóndi í Flatey sem var giftur Sigurveigu Ólafsdóttur og var Sigurlaug langamma hennar sem verið hafði gift tengdaföður hennar.  Jón Ingjaldsson var einnig faðir Sigurlaugar Maríu f.1900, d.1991 húsfreyju á Brautarhóli á Svalbarðsströnd og Þuríður f.1893, d.1983 húsfreyju í Flatey gift Sigurpáli Jenssyni bónda þar.

Ég ætla bæta nokkrum upplýsingum um Sigurlaugu Guðlaugsdóttir f.1812 sem var langamma Hallgríms í Grímshúsum afa míns eins og ég gat um áður, móðir hennar var Sigríður Þorsteinsdóttir f.2.3.1788 á Stóruvöllum d.20.8.1841 systir hennar var Vilborg kona Jóns Jónssonar bónda í Stórutungu sem ég skrifaði grein um fyrir stuttu, faðir hennar var Guðlaugur Kolbeinsson f.24.4.1790 á Geiteyjarströnd d.23.12.1875 bóndi í Álftagerði í Mývatnssveit 1822-1850, Sigurlaug átti þrettán hálfsystkyni samfeðra og sjö samæðra, átti ekki alsystkyni svo ég viti, meðal hálfsystkyna samfeðra voru Sigurlaug f.1832 sem var gift Sigurði Jónssyni sem var einnig hálfbróðir Sigurlaugar sammæðra sem ég nefndi hér ofar, Guðný f.1822 samfeðra húsfreyja á Stöng kona Ásmundar Jónssonar f.1824 sem var hálfbróðir Sigurlaugar sammæðra seinni maður Guðnýjar var Kristján Jónsson f.1831 sem einnig var hálfbróðir Sigurlaugar sammæðra, meðal barna Guðnýjar var Sigríður Ásmundsdóttir f.1851 mamma Konráð Erlendssonar f.1885 kennara á Laugum og Kristjönu Erlendsdóttur f.1889 húsfreyju á Vaði maður hennar var Vésteinn bóndi á Vaði amma Vésteins var Steinunn Jónsdóttir f.1819 og var hún einnig hálfsystir Sigurlaugar sammæðra,  móðir Erlends föður Konráð og Kristjönu var Guðrún Guðlaugsdóttir f.1821 sem einnig var hálfsystir Sigurlaugar samfeðra, Guðfinna f.1830 var einnig hálfsystir Sigurlaugar sammæðra meðal barna hennar var Ásmundur Helgason bóndi í Laugaseli, Guðný Helgadóttir húsfreyja í Holti í Reykjadal og Kristín Helgadóttir húsfreyja Nípá og Miðhvammi, meira síðar.

Kannske einhver hafi áhuga á þessu sem þekkir eitthvað þarna til, og þá er bara að senda fyrirspurn og reyni ég að greiða úr því, er með tæpa fjórtánhundruð niðja Sigurlaugar skráða hjá mér.

kveðja Halli


Næsta síða »

Höfundur

Hallgrímur Óli Helgason
Hallgrímur Óli Helgason

fæddur á Húsavík 24.3.1960, uppalin í Húsabakka í Aðaldal til 1980, síðan átt heima í Bolungarvík að undanskyldum sex mánuðum sem ég átti heima á Húsavík 2003-2004, netfangið mitt er sigurbjorgh@simnet.is og hallioli@visir.is

 

245 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 125969

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband