4.8.2009 | 16:16
GAMALT OG GOTT
Árni Gíslason var fæddur 1788 og varð úti á Reykjaheiði 1802, aðeins 13 ára gamall, sonur Gísla Arngrímssonar bónda í Skörðum. Var hann ásamt öðrum manni á leið úr Kelduhverfi inn yfir Reykjaheiði til Reykjahverfis með fjárrekstur, seint um haustið. Brast á iðulaus stórhríð er þeir félagar voru komnir inn fyrir miðja heiði. Árni varð til, þar sem síðan heitir Árnahvammur, en Jón félagi hans þar skammt frá við nípu á Höfuðreiðarmúla, er síðan heitir Jónsnípa. Bylur þessi var talinn galdrabylur, og af völdum Vigfúsar prests í Garði í Kelduhverfi, en hann hafði haustið áður lent í hörkurifrildi við föður Árna, Gísla Arngrímsson. Voru orðaleppar þeirra víðfrægir. M.a. mælti Vigfús prestur: ,,Kom ég í Skörð og fékk úldna blöndu að drekka. ,,Og var hún ekki fullgóð í andskotann á þér, til að míga henni undir, ansaði Gísli. Meðan stórhríðarbylurinn stóð yfir er sögn, að séra Vigfús gengi um gólf í baðstofuhúsi sínu og tautaði eitthvað ákaft fyrir munni sér. Heyrðu menn þessa setningu m.a.: ,,Skyldi þeim ekki vera farið að kólna á kjúkunum gemlingunum hans Gísla míns í Skörðum.
Þessi saga er tekinn úr Árbók Þingeyinga frá 1964, hana ritar Jón Þór Buch bóndi á Einarsstöðum í Reykjahverfi, sagan heitir, Brotabrot um Gísla í Skörðum, og er þetta aðeins brot úr þeirri sögu.
336 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Niðjatal
- Niðjatal Maríu og Ingólfs í Húsabakka
- Niðjatal Guðmundar Jóhannessonar bónda á Grýtu og Svertingsstöðum
- Niðjatal Kristjáns Hallssonar bónda á Laugarhóli og Ystahvammsgerði
- Niðjatal Jóns Einarssonar bónda í Svartárkoti og Björgum, fór til Brasilíu
- Niðjatal Þórðar Jóhannessonar í Presthvammi og Hrauni
- Niðjatal Kristjáns Jenssonar bónda í Fossseli
- Niðjatal Þorláks Jónssonar bónda í Torfunesi
- Niðjatal Jónasar Davíðssonar bónda á Bringu í Eyjafirði
- Niðjatal Árna Frímanns Kristjánssonar bónda í Holtakoti í Kinn og Saltvík í Reykjahverfi
- Niðjatal Guðmundar Guðnasonar bónda í Grímshúsum
- Niðjatal Bergvins Þórðarsonar bónda í Húsabakka og Brekku
- Niðjatal Indriða Kristjánssonar bónda í Skriðuseli
- Niðjatal Jóns Ólafssonar frá Mýrarlóni
- Niðjatal Guðna Jónssonar bónda í Sýrnesi og Grímshúsum
- Niðjatal Evlalíu Guðmundsdóttur
Fréttablöð
Eldri færslur
- Júní 2011
- Maí 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- Júlí 2010
- Apríl 2010
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Bloggvinir
- Aðalsteinn Bjarnason
- Agný
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Benedikt Sigurðarson
- Bjarni Harðarson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Svansson
- Brynja skordal
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Elfur Logadóttir
- Halla Signý Kristjánsdóttir
- Hallgrímur Guðmundsson
- Hermann Jónsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Birgisson
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Valur Jensson
- Karl Hreiðarsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Laugar
- Lára Stefánsdóttir
- Ólöf Brynja Jónsdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sóley Valdimarsdóttir
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Stefánsson
- Sverrir Stormsker
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vilhelmina af Ugglas
- Þorleifur Ágústsson
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þórir Kjartansson
Myndaalbúm
Nýjustu færslurnar
- Endurreisn ómennskunnar !
- Sjálfstraust Pæling II
- Skírn og ferming
- Leyndardómur Parísarsamningsins
- Mætti í vinnuna strax í gærkvöldi og hóf störf
- Blanda og blekkingar - Ætla stjórnmálamenn einu sinni enn að fara að hörfa undan íþróttafélaginu og fjárfestunum, víxlurunum?
- Þeir eru víða, nasistarnir
- "Hvað kallast það?"
- -lagaumfang-
- Vill endurskoða EES
Athugasemdir
Sæll frændi,langt er um liðið er ég hef ritað þér.Það er alveg fyrir víst að kyngimögnuð galdrastemming er þekkt í þingeyjarsýslum,og þú nefnir þarna Jón Þór Buch,en það að nefna nafn hans það er að segja Buch,að þá minnir það mig á að ég er nýbúinn að lesa eina af bókum rithöfundarins Árna Óla, en þar segir frá Nikulás Buch er var að vinna við kóngsverslunina á Húsavík og það árið 1780.En þar er sagt frá því að Nikulás þessi hafi kennt Íslendingum á skíði .Mun hann hafa fengið um átta ríkisdali fyrir að kenna þremur Íslendingum á skíði og síðar hafi bæst við tveir ríkisdalir ef þeir færu að kenna öðrum og mun svo hafa verið.Sæll að sinni ..
Jens Elíasson (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 00:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.