BRANDARI

Drukkinn maður hringdi í lögregluna til þess að tilkynna að þjófar hefðu brotist inn í bílinn hans."Þeir hafa stolið mælaborðinu, stýrinu, bremsunni, kúplingunni og meira að segja bensíngjöfinni!" hrópaði hann. Lögreglan var orðlaus og ákvað að senda mann á staðinn. En áður en hann komst út úr dyrunum var hringt í annað sinn og sama röddin var í símanum:"Ég afturkalla beiðnina," sagði hann hikstandi, "ég hafði óvart sest í afturstætið."   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jóna Á. Gísladóttir, 1.9.2007 kl. 23:12

2 Smámynd: Jens Guð

  Þú veist kannski ekki að þetta gerðist í raunveruleika í Reykjavík fyrir 30 árum.  Að vísu ekki alveg nákvæmlega svona.  Einn kunningi minn lenti í þessu.  Hann fór út bílinn sinn.  Hafði átt 2ja dyra bíl en skipti yfir í 4ra dyra.  Og í fyllerísvímu fór hann í aftursætið.  Fann þar hvorki stýri né gíra.  Hljóp in til sín,  hringdi á lögguna  og vildi kæra þjófnað á stýrinu og gírstöng.  Þegar löggan mætti á svæðið til að gera skýrslu reyndist allt vera á sínum stað.  Löggan tók af honum bíllyklana og lét hann sækja þá daginn eftir.

  Í annað sinn var ég farþegi í bíl hjá þessum sama manni.  Við vorum báðir blindfullir.  Þetta var um miðja nótt.  Vinurinn brunaði á góðum hraða yfir hringtorg.  Kengbeyglaði aðra framfelguna.  Ég varð að hjálpa honum að stýra það sem eftir var leiðar því að stýrið togaði svo ákaft til vinstri.  Vinurinn tók ekkert eftir akstrinum yfir hringtorgið en bölvaði þeim mun meira vegadæminu í Reykjavík.  Sagði:  "Þessar andskotans holur og hæðar á vegum borgarinnar eru óþolandi."

   Skömmu síðar stoppaði löggan okkur.  Bíllinn valhoppaði á beygluðu felgunni. 

Jens Guð, 1.9.2007 kl. 23:29

3 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

gaman að þessu, ég hafði ekki heyrt þessar sögur, en góðar eru þær, fann þennan brandara eða ekki brandara einhversstaðar

Hallgrímur Óli Helgason, 1.9.2007 kl. 23:42

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábær ertu Hallgrímur, algjör perla  Ekki er Jens síðri.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.9.2007 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hallgrímur Óli Helgason
Hallgrímur Óli Helgason

fæddur á Húsavík 24.3.1960, uppalin í Húsabakka í Aðaldal til 1980, síðan átt heima í Bolungarvík að undanskyldum sex mánuðum sem ég átti heima á Húsavík 2003-2004, netfangið mitt er sigurbjorgh@simnet.is og hallioli@visir.is

 

31 dagur til jóla

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband