HESTUR/HJÓL

Bróðir minn hafði eignast hið forláta reiðhjól þegar hann var

um það bil fimmtán ára, ég var þá átta ára og hafði ég gaman

af því að fá að prófa það helst er hann skrapp frá, eitt sinn

hafði hann orðið sér úti um hraðamælir á reiðhjólið, og var að

vita hvað hann kæmi því hratt, mælirinn var skráður í sjötíu

að mig minnir, hann fór í hinar ýmsu brekkur og reyndi að

koma því sem hraðast, ekki fannst honum að hann kæmist

nógu hratt, og datt þá í hug að ég færi á hjólið og hann á Jarp

gamla, setti hann svo band utan um sig og batt í hjólið og átti

ég að fylgjast vel með hraðamælinum, síðan var þeyst á stað og

upp á þjóðveginn, þar var ekki mikil umferð og þetta var malar-

vegur, en harður þó á miðjunni en lausamöl í köntum, Jarpi

leist nú ekkert á þessi læti sem fylgdu honum eftir og jók hann

frekar hraðann heldur en hitt, leist mér nú ekkert á blikuna er

við vorum kominn á mikla siglingu og fór eitthvað að láta heyra

í mér og reyna að fá bróðir minn til að hægja á, en óhljóðin voru

bara til þess að Jarpur jók bara ferðina, og þar kom að því að

ég lenti út í lausmöl og fór í loftköstum út í móa og endaði á

girðingu sem var við veginn,  allur lemstraður en þó óbrotinn,

sem var afar sjaldgæft hjá mér á þessum árum þar sem ég var

alltaf að brjóta mig, en það er efni í fleiri sögur, loksins tókst

honum að stoppa Jarp og sneru þeir við til að athuga með mig

að ég hélt, það fyrsta sem bróðir minn spurði var, hvað fór

mælirinn hátt, ég umlaði eitthvað og sagðist ekki hafa tekið

eftir því, hva drengur varstu ekki að horfa á mælirinn, við

verðum þá bara að prófa aftur á heimleiðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Hestum hefur jafnan verið illa við hljóð.  Skemmtileg saga.

Ester Sveinbjarnardóttir, 18.4.2007 kl. 23:19

2 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

já hestunum var ekki alltaf vel við einhver óhljóð og læti, sagan hefði jafnvel orðið betri ef ég hefði haft góðan söguritara mér til halds og traust, ekki mikill söguritara sjálfur

Hallgrímur Óli Helgason, 18.4.2007 kl. 23:29

3 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Sæll Hallgrímur þakka hlý orð í minn garð

Júlíus Garðar Júlíusson, 19.4.2007 kl. 08:24

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahahaha...... ég sé þetta alveg fyrir mér.  En það hefur ekki verið skemmtilegt fyrir þig.  Ég er alveg viss um að þú hefur ekki verið í standi til að horfa á mælinn.   Þið hafið nú verið meiri pottormarnir.  Hvernig komstu þér undan að endurtaka leikinn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2007 kl. 12:02

5 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

sem betur fer var hjólið óökufært eftir þessa byltu, svo ég slapp við aðra ferð, já það var ýmislegt brallað í sveitinni og væri efni í nokkrar bækur ef maður hefði tími til að sinna skrifum

Hallgrímur Óli Helgason, 19.4.2007 kl. 12:12

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er mjög skemmtilegt að lesa svona æskuminningar fólks.  Jamm sem betur fer var hjóliðl óökufært elsku Hallgrímur, annars ættum við ef til vill ekki bloggvin með því nafni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2007 kl. 20:03

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það var oft gaman í æsku.  Gleðilegt sumar til þín og þinna.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.4.2007 kl. 21:46

8 identicon

Er þetta ekki það sem kallað er hjólhestur.

Gústi (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hallgrímur Óli Helgason
Hallgrímur Óli Helgason

fæddur á Húsavík 24.3.1960, uppalin í Húsabakka í Aðaldal til 1980, síðan átt heima í Bolungarvík að undanskyldum sex mánuðum sem ég átti heima á Húsavík 2003-2004, netfangið mitt er sigurbjorgh@simnet.is og hallioli@visir.is

 

220 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 126090

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband