MÉR LÍKAR HVERNIG ÞÚ HUGSAR

Jói litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára
prófin og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar.

"Jói minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar
aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?"

"Enginn", svarar Jói.

"Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan?

"Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Jói

Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar"

Örstuttu seinna réttir Jói litli upp hendi.

"Já Jói"

"Má ég spyrja þig einnar spurningar?"

"Endilega" segir kennslukonan.

"Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?" Spyr Jói

Kennslukonan roðnar og segir, "Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?....eða eitthvað"

"Neeiiii" segir Jói litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.6.2007 kl. 10:12

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

SNillingurinn okkar. Á morgun keyri ég fram hjá Húsabakka, á ég ekki að vinka fyrir þig.?

Ásdís Sigurðardóttir, 6.6.2007 kl. 12:32

3 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

já, það er best að þú vinkir múttu gömlu, fer líklega  á morgun í sveitina

Hallgrímur Óli Helgason, 6.6.2007 kl. 20:38

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Alltaf gott að hugsa útfyrir rammann

Laufey Ólafsdóttir, 10.6.2007 kl. 01:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hallgrímur Óli Helgason
Hallgrímur Óli Helgason

fæddur á Húsavík 24.3.1960, uppalin í Húsabakka í Aðaldal til 1980, síðan átt heima í Bolungarvík að undanskyldum sex mánuðum sem ég átti heima á Húsavík 2003-2004, netfangið mitt er sigurbjorgh@simnet.is og hallioli@visir.is

 

233 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 126040

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband