ÆTTFRÆÐI

Ef þið hafið einhver vandamál í sambandi við ættfræði, svo sem niðja, forfeður eða eitthvað annað endilega hafið samband, og mun ég reyna að leysa úr því, mun ekki blogga mikið á næstunni þar sem ég er kominn í ættfræðina aftur af fullum krafti eftir árs hlé frá henni, ættfræðin er mitt aðaláhugamál og er búið að vera síðan 1998 er ég hætti að sparka bolta eftir tuttugu og fimm ára spark.

kveðja til bloggvina og alla hinna, Halli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég á fullt af ættingjum sem ég veit ekkert um. Náskyldum ættingjum. Ætti nú ekki að vera erfitt fyrir mig að rekja þetta þó, þar sem öll móðurættin kemur frá Raufarhöfn. Ekki stærsti staður á landinu.

Jóna Á. Gísladóttir, 5.10.2007 kl. 22:53

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hóli þetta er spennandi, hverjir skildu vera ættingjar Jónu frá Raufarhöfn?? þú verður að kanna það. Ég kem til með að fylgjast með þér áfram.  Helgarkveðja á línuna.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.10.2007 kl. 23:44

3 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

já það getur verið gaman að fylgjast með því, ef hún hefur áhuga á því að vita það, annars hafa allir aðgang að íslendingabók og geta skoðað sína forfeður, en ég hef aftur á móti aðgang að gífurlegu ættfræðisafni sem vinur minn hefur safnað að sér og er það ýmislegt meira en nokkur hefur aðgang að.

Hallgrímur Óli Helgason, 6.10.2007 kl. 00:40

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flott nýja myndin af þér, minn bara að fíla sig á Akureyri.:):)

Ásdís Sigurðardóttir, 7.10.2007 kl. 15:19

5 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

slökuðum aðeins á á leiðinni á ættarmótið um síðustu helgi, smá kaffisopi eftir sjö tíma ferðalag til Akureyrar, tengdadóttirin smellti þessari mynd af mér.

Hallgrímur Óli Helgason, 7.10.2007 kl. 16:17

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég ætla að notfæra mér þetta tilboð um leið og eitthvað kemur sér þannig fyrir mig Hallgrímur minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.10.2007 kl. 20:39

7 identicon

Þetta líst mér vel á,ættfræðigrúsk er skemmtilegt.Hef sjálfur verið að grúska nokkuð undanfarin misseri.En segðu mér ef þú getur,veistu um það hvort að einhver hafi samband við ættingja okkar í Kanada?Fyrir nokkrum árum frétti ég það að fólkið okkar í Hrísey hafi samband við það.Þettað er svona bara forvitni í mér ..        kveðja,,Jensi..

Jensi (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 00:29

8 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

systir mín Kristjana skrifaðist á  við frænkur okkar í Kanada lengi og komu þær nokkuð oft í heimsókn í sveitina, það voru tvær systur, amma þeirra var Guðrún Kristjánsdóttir systir Indriða langafa, ég sá þær aldrei enda fóru þær að koma í heimsókn eftir 1980 þegar ég var fluttur vestur en systir mín þekkti þær vel og svo systir pabba og fleiri, höfðu mikinn áhuga á sínum ættartengslum, þær eru látnar núna, þessi systkyni voru níu, átta systur og einn bróðir, já það getur verið að þau í Hrísey hafi hitt þessar systur líka, þar sem Eiður bróðir afa okkar bjó þar, þekki það ekki alveg.

kveðja Halli

Hallgrímur Óli Helgason, 10.10.2007 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hallgrímur Óli Helgason
Hallgrímur Óli Helgason

fæddur á Húsavík 24.3.1960, uppalin í Húsabakka í Aðaldal til 1980, síðan átt heima í Bolungarvík að undanskyldum sex mánuðum sem ég átti heima á Húsavík 2003-2004, netfangið mitt er sigurbjorgh@simnet.is og hallioli@visir.is

 

232 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband