AMMA

Amma mín Kristjana Árnadóttir hefði orðið hundrað ára í dag

hefði hún lifað, hún var fædd 21.sept. 1907 í Saltvík í

Reykjahverfi, hún giftist 15.ág. 1926 Hallgrími Óla Guðmundssyni

bónda í Grímshúsum í Aðaldal sem var f. 29.sept 1897 og

hefði því orðið hundrað og tíu ára um næstu helgi.

Hallgrímur afi lést langt um aldur fram 1954, amma bjó

síðan alla tíð í Grímshúsum eða þangað til hún lést 11.sept 1987,

þau amma og afi eignuðust sex börn, 1. Eysteinn f.1929, d.1990

bóndi í Grímshúsum, 2. Sigurbjörg móðir mín f.1931 húsfreyja

í Húsabakka í Aðaldal var gift Helga Ingólfssyni bónda þar

er lést 1993, og eignuðust þau sjö börn, 3. Guðmundur f.1938

bóndi í Grímshúsum giftur Halldóru Jónsdóttur kennara og

eiga þau þrjú börn, 4. Jónína Þórey f.1941, d.1942, 5. Jónína Árný

f.1943 kennari á Húsavík gift Hreiðar Karlssyni fyrv. kaupf.stj.

þar og eiga þau fjögur börn, 6. Guðrún Helga f.1944 leikskólastjóri

í Reykjavík gift Halldóri Guðmundssyni húsgagnasmið og

eiga þau þrjú börn, niðjar ömmu og afa eru nú sextíu og sjö.

Föðuramma mín hefði orðið hundrað og nítján ára í gær hefði

hún lifað, og er við hæfi að ég skrifi smá pistil um hana að ári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gnauðar mér um grátna kinn

gæfumótbyr er svalur

nú kveð ég þig í síðasta sinn

sveit mín Aðaldalur

                                    veistu hver orti  ?  kv Jensi 

jensi (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 00:05

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ég veit ekki...á maður að segja til hamingju?það allavega styttist í jólin sé ég...

Heiða Þórðar, 22.9.2007 kl. 00:08

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að lesa þetta, ég hef svo mikinn áhuga á öllum svona ættfræðslufærslum.  Eigðu góða helgi minn kæri.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.9.2007 kl. 00:09

4 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

þakka fyrir kveðjurnar Heiða og Ásdís og Jensi mér finnst að ég hafi séð þessa vísu áður, mér dettur í hug að þetta væri eftir Indriða á Fjalli eða Guðmund á Sandi, gæti þó verið eftir einhvern sem var að flytja úr sveitinni, kem því ekki alveg fyrir mig.

Hallgrímur Óli Helgason, 22.9.2007 kl. 00:29

5 identicon

Sæll,vísan er eftir einhvern Kanadafara úr Aðaldal,ég mun komast að því .En annars flutti ekki langilangi afi þinn til kanada,,..''??

jensi (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 00:41

6 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

jú það passar, Kristján Hallsson langalangafi minn flutti til Kanada rúmlega sjötugur og varð 103 ára, einnig Jón Einarsson langalangafi minn flutti til Brasilíu um 1863 og síðar til Kanada og lést þar, það voru margir Aðaldælingar sem flutti til Kanada og margir hverjir góð skáld eins og var um marga á þessum tíma, flestir gátu smellt saman vísu.

Hallgrímur Óli Helgason, 22.9.2007 kl. 00:46

7 identicon

Veistuhvort að mörg börn hansog að hann langi langi afi þinn hafi skilið eftir börn eftir hér heime á ísafróni,,þekki til þónokkuð til vesturfarana ps og nanstu hvað skipið hét sem að hann fór á. takk fyrir nóg í bili kv jensi frændi.eða svo er mér sagt,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,góða helgi,,,,,,,,

jensi (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 01:28

8 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Kristján Hallsson fór til Kanada einn, börn öll uppkominn, held að hann hafi verið skilin við Rósu konu sína, allavega fór hún ekki með, sögusagnir þegar ég var ungur voru að hann hefði farið í vist til konu og átt með henni barn í Kanada, annars er ekki vitað um hann, ein dóttir Kristjáns var farinn vestur Guðrún, hún var gift Jósep Jónssyni og áttu þau tvö börn, Guðrún átti tvö börn áður en hún fór vestur, annað þeirra var Friðrika sem var langamma Jóns Þorgrímssonar á Húsavík, einnig flutti önnur dóttir Kristjáns vestur Ólöf, veit ekki meir um hana, átti þrjú börn, ég var einhverntíma búinn að finna nafnið á skipinu sem Kristján fór með, en man það ekki núna, ert þú af Buch ættinni eða öðruvísi skyldur mér, þú kvittar undir jensi, þannig að ég veit ekki meir um þig.

Hallgrímur Óli Helgason, 22.9.2007 kl. 15:30

9 identicon

Afar okkar bræður,Ingólfur/Finnur.En seg mér er Buch,ættin skyld okkur að þessum leggi,,?Í næsta húsi við mig býr fólk af Buch ættinni. kv Jensi.

jensi (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 21:12

10 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

já nú fatta ég hver þú ert , sonur Rúnu, þá er Kristján Hallsson forfaðir þinn líka, hann var afi Finna, Buchættin er ekki skyld þér, hún er skyld mér í gegnum mömmu Sigurbjörgu, langafi mömmu var Jens Kristján Nikulássonar Buch sem var ættfaðir Buchættar, er með rúmlega níuþúsund niðja Nikulásar Buch í espólín forriti hjá mér, er einnig með tvöþúsund og fimmhundruð niðja Kristjáns Hallssonar langalangaafa okkar og rúmlega þúsund niðja Indriða Kristjánssonar langafa okkar, hvaða fólk af Buchætt býr við hliðina hjá þér?

sigurbjorgh@simnet.is

kveðja Halli

Hallgrímur Óli Helgason, 23.9.2007 kl. 12:18

11 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

ég gleymdi að segja þér að ég er með niðjatal langafa minna fjögurra hér vinstra megin á síðunni ef þú hefur ekki tekið eftir því, þar á meðal Indriða Kristjánssonar langafa okkar, setti það inn í vetur þannig að það vantar eitthvað í það.

Hallgrímur Óli Helgason, 23.9.2007 kl. 13:20

12 identicon

Sæll frændi

Við sjáumst vonandi á norðurlandi á afmælisættarmóti ömmu Kristjönu um næstu helgi?? (þó það verði á afmæli afa Hallgríms;-))

Bestu kveðjur - Kristjana Þórey

Kristjana Þórey Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 18:07

13 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

blessuð frænka og þakka fyrir innlitið, ég reikna með að við komum ef veður og færð lofar, vonandi sjáumst við þá.

Hallgrímur Óli Helgason, 23.9.2007 kl. 19:22

14 identicon

Sæll fróðlegt verður að líta á niðjar okkar á síðu þinni,takk fyrir það.Þú spyrð um hver af Buch ættinni sé nágranni minn það ku vera,Sigurveig Buch.

jensi (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 21:27

15 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

já, Veiga Buch, kannaðist við hana aðeins þegar hún bjó á Einarsstöðum í Reykjahverfi, afi hennar var Friðrik Kristjánsson Buch, bróðir Árna langafa, endilega skoðaðu niðjatal Indriða langafa, kannske sendirðu mér leiðréttingar ef þú finnur villur eða það vantar í skrána, svo er ég með tæplega þrjúhundruð niðja í forritinu hjá mér út af Sigurbirni Hallgrímssyni langafa þínum, ef þig vantar upplýsingar um þá niðja þá er það velkomið að hjálpa.

kveðja Halli

Hallgrímur Óli Helgason, 23.9.2007 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hallgrímur Óli Helgason
Hallgrímur Óli Helgason

fæddur á Húsavík 24.3.1960, uppalin í Húsabakka í Aðaldal til 1980, síðan átt heima í Bolungarvík að undanskyldum sex mánuðum sem ég átti heima á Húsavík 2003-2004, netfangið mitt er sigurbjorgh@simnet.is og hallioli@visir.is

 

240 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband