BYLTA

Bróðir minn hefur verið að horfa á vestra mynd, hugsaði ég þegar

honum datt það snjallræði í hug að gera eins og aðalkallarnir voru

vanir að gera í bíómyndunum, að stökkva ofan af þaki eða úr glugga

og hesturinn þeirra beið tilbúinn, og hægt var að þeysa af stað frá yfir-

vofandi vá eða byssukúlum óvinarins, nú átti ég að fara upp á þak og

hann myndi halda í hestinn, ég átti að hitta á bak, hann myndi slá í

hestinn og ég þeysa á stað, alveg eins og bíómyndinni, mér leist nú

ekki of vel á þetta, skil það nú ekki, þar sem ég var yfirleitt til í allt,

svo úr varð að ég fór upp á efri hæðina og út í glugga og þaðan skyldi

stokkið á hestinn, síðan var allt gert klárt, ég miðaði út hestinn og lét

mig síðan vaða, bróðir minn sló í hestinn, hann prjónaði og þeysti af

stað, ég lenti aftast á honum, þar sem rauk af stað of snemma, ég greip

í taglið og hélt fast,  sveiflaðist einhverja metra út í loftið og lenti

síðan frekar illa rispaður og marinn, og að sjálfsögðu með brotna löpp,

þá var ekkert annað að gera en að gera Gunnu gömlu klára og keyra

stráknum á Húsavík og fá Daníel lækni til gera löppina klára fyrir

næsta ævintýri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að sjá þig nefna Daníel. Hann bjargaði lífi mínu. Ég var alltaf mjög veik sem barn og hann sendi mig fyrst suður 6 ára og doksarnir á Landssp. sögðu að þetta mundi eldast af mér. Hann gafst ekki upp og svo lokst þegar ég var 13 ára var kominn nýlærður læknir frá London sem sá hvað var að mér og var ég send í hjartaaðgerð til London sumarið 1969 og bjargaði það lífi mínu. Takk fyrir gott blogg

Ásdís Sigurðardóttir, 28.4.2007 kl. 01:07

2 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

já Daníel var góður læknir, ég man svo vel eftir honum, enda fór ég oft til hans, held að hann hafi hætt  á Húsavík um 1969

Hallgrímur Óli Helgason, 28.4.2007 kl. 01:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Var þetta sami fóturinn sem brotnaði þarna.  Þú hefur nú verið meiri karlinn Hallgrímur. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.4.2007 kl. 10:38

4 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

já þetta var sami fóturinn, brotnaði oft í æsku amk. tólf sinnum, t.d. handar, fingur, ristar, tá, fingur og hælbrotnað, en aldrei á vinstri fæti.

Hallgrímur Óli Helgason, 28.4.2007 kl. 11:09

5 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Þið Bergsteinn hafið verið meiru prakkararnir, ég hefði ekki viljað vera í sporum foreldar ykkar. 

Ester Sveinbjarnardóttir, 28.4.2007 kl. 23:50

6 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

já við vorum miklir prakkarar við bræðurnir, í þessari sögu er það elsti bróðir minn sem heldur í hestinn, hann er sjö árum eldri en ég og heitir Ingólfur og er bóndi í Borgarfirði

Hallgrímur Óli Helgason, 28.4.2007 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hallgrímur Óli Helgason
Hallgrímur Óli Helgason

fæddur á Húsavík 24.3.1960, uppalin í Húsabakka í Aðaldal til 1980, síðan átt heima í Bolungarvík að undanskyldum sex mánuðum sem ég átti heima á Húsavík 2003-2004, netfangið mitt er sigurbjorgh@simnet.is og hallioli@visir.is

 

234 dagar til jóla

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 126038

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband