FORMÚLA

Búið að vera gott ár hjá Lewis Hamilton og félögum, til hamingju með glæsilegan árangur.
mbl.is Hamilton heimsmeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TVÍBURAR

Vel að verki staðið hjá Valgerði, fjóra stráka og allir afmæli sama dag, einhverntíma hefur verið fjör hjá þeim í afmælisveislum, ég og yngsti bróðir minn erum fæddir sama dag, og faðir okkar átti svo afmæli daginn eftir.
mbl.is Fjórir bræður fæddir sama dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SAMA SINNIS, SÍÐARI HLUTI

Þá er þeir Jón Ingjaldsson og ferðafélagi hans voru komnir á há Vaðlaheiði morguninn eftir með jarðneskar leifar Sigurjóns, stöldruðu þeir við með sleðann, tóku upp nestisbita og gáfu hestinum. Þegar þeir höfð leyst hestinn frá ækinu og voru hálfnaðir með nesti sitt, seig sleðinn af stað og rann til vesturáttar undan smáhalla á heiðinni. Jón snaraðist á eftir og þreif í sleðann, áður en illa fór, og sagði: Enn þá er sama sinnan í honum.

 


EKKI VANUR AÐ SLÓRA

Jón Ingjaldsson á Laxamýri, stundum kallaður Ingjaldur gamli á efri árum, var lengi vinnumaður á þeim stóra stað, trúr maður í starfi og stundaði laxakistuveiðar fyrir Sigurjón, síðan fyrir bræður, syni Sigurjóns, Egil og Jóhannes. Loks var hann hjá Jóni H. Þorbergssyni, alls milli 40 og 50 ár á Laxamýri. Sigurjón, sá annálaði athafnamaður, andaðist á Laxamýri veturinn 1918. Hann hafði valið sér legstað á Akureyri við hlið konu sinnar, sem dó á undan honum, Snjólaugar Þorvaldsdóttur. Jóni Ingjaldssyni var falið að flytja líkið inn eftir á sleða og fór annar maður með honum. Þeir gistu í Ljósavatnsskarði. Um kvöldið spyr húsráðandi: Hugsið þið ykkur að fara snemma í fyrramálið? Ætli hann vilji ekki komast af stað um fjögurleytið, svaraði Jón, hann er vanastur því.

seinni hluti síðar.


TIL HAMINGJU STRÁKAR

Það er þá orðið ljóst að við spilum í 2. deild á næsta ári og tími til kominn, og bæði liðin úr sama riðli fara upp, þar sem Hamrarnir/Vinir komu mjög á óvart með því að slá út Skallagrím, átti ekki von á þessu þar sem þeir voru frekar slakir í sumar þegar við lékum við þá þrjá leiki, en til hamingju Hamrar/Vinir.


mbl.is Ljóst hvaða lið fara upp í 2. deild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BRANDARI

Eftir að hafa drukkið ansi mikið ákvað barþjóninn að neita einum gestanna um meira áfengi. Maðurinn stóð upp en datt strax niður aftur. Eftir að hafa gert þetta nokkrum sinnum ákvað hann að skríða út í ferskt loft. Allt kom fyrir ekki og ekkert gekk hjá manninum, hann ákvað því að skríða heim til sín. Morguninn eftir spyr konan hans, hvað hann hafi verið að gera á barnum. Hann neitaði að hafa farið. Konan sagði þá: “Ég veit að þú varst á barnum, því barþjóninn hringdi og sagði að þú hefðir gleymt hjólastólnum aftur”.


GISTIHÚS Í GEITAFELLI

Hvern þann greiða er ferðamenn óska eftir og ég kann að geta af hendi látið sel ég hér eftir ákveðnu verði sem er þannig:

 Dagverður............................................................................................30 aurar

 Morgunverður með vökvun.............................................................. 30 aurar

 1 pt. Vökvun.........................................................................................12 aurar

1 pt. Nýmjólk.........................................................................................12 aurar

 Rúm yfir nótt........................................................................................10 aurar

 Kaffi bolli án brauðs...............................................................................8 aurar

 Kaffi bolli með brauði..........................................................................15 aurar

 Hús fyrir hest yfir nótt...........................................................................8 aurar

 1 fjórðungur af heyi.............................................................................30 aurar

 Fyrir land og geymslu á 1 hesti yfir dægur, eða sólarhring..............10 aurar

 Styttri tíma mest 4 klt. .........................................................................5 aurar

 

Athugagr.

     Þess vil ég geta að sumt af því er verðlagt er, er mjög óhægt að veita svo sem rúm, hey og fl.

 

                                                     Geitafelli 14. Febrúar  1886

                                                                                          Snorri Oddsson.

 

TVÆR SMÁ-SÖGUR

Þar sem ég hef fengið skilaboð frá bloggvini um það að hvort ég sé lífs eða liðinn, skal það tekið fram að ég er við þokkalega heilsu, þó svo ég hafi ekki bloggað mikið undanfarið, vegna mikillar vinnu og jafnframt að einhverju leyti leti, eyði ekki miklum tíma við tölvuna í sumar, nema þá til að lesa það sem bloggvinir mínir hafa að segja, skal það viðurkennast að ég hef ekki verið duglegur við að kvitta fyrir mig, en fylgist ágætlega með, en mestur þessi litli tími í tölvunni í sumar fer í að grúska í ættfræði, ætla nú að blogga tvær smá-sögur, svo bloggvinir mínir hafi eitthvað að moða úr.

 

Sagt er, að Júlíusi sýslumanni hafi verið boðið tollvarðarstarf á Húsavík, þegar hann varð að láta af embætti fyrir aldurssakir 1956. Er þetta satt? Eða ætlarðu að sinna þessu? var spurt. Nei. Sá, sem búinn er að vera skipstjóri eins lengi og ég, fer ekki út í eldhús til að gerast kokkur.

 

 Þegar Karl Sigtryggsson á Húsavík var ungur maður og stundum dálítið áreitinn, vatt hann sér eitt sinn að Aðaldælingum, sem voru að binda sláturklyfjar hjá sláturhúsi KÞ á Húsavík. Þar á meðal var Bjarni í Hellnaseli og stóð hann álútur yfir sviðapoka og batt yfir með snæri. Karl segir: Getið þið ekki, piltar góðir, hjálpað mér um nokkur kindarhöfuð? Aðaldælingum varð orðfall andartak, uns Bjarni hafði lokið við hnútinn yfir pokanum. Reis hann þá upp teinréttur, sneri sér að Karli og mælti: Ég ætla, maður minn, að þér nægi þitt eigið kindarhöfuð. Sneri þá Karl frá og átti ekki meira við Aðaldælinginn.


HOLD ER MOLD HVERJU SEM ÞAÐ KLÆÐIST

Hjá Benedikt Kristjánssyni prófasti á Grenjaðarstað var einhverju sinni unglingspiltur, Torfi að nafni. Dag einn á slætti voru þeir að þekja fjósheyið með blautu torfi. Prestur hringaði torfurnar og bar upp og rétti Torfa, sem tók á móti og þakti. Sjá þeir þá, að hópur velbúinna ferðamanna ríður í hlað í heimsókn til prestsins. Segir þá séra Benedikt: - Guð hjálpi mér, og hér er ég svona til fara! - Svona er ég líka, segir Torfi. - Er það nú ekki annað? segir prestur. - Og hold er mold, hverju sem það klæðist, svaraði pilturinn. Þetta svar þótti séra Benedikt ágætt.

VONT Á MEÐAN Á ÞVÍ STENDUR

Guðríður Jónsdóttir frá Tóttum í Kelduhverfi var meykona alla ævi, lengi vinnukona á Kálfaströnd, Reykjum, Geitafelli, Kraunastöðum og Múla. Síðast dvaldi hún á Sandi á níræðis aldri. Hún var frásagnakona og slyng í þeirri grein, mælsk og minnug. Þegar hún var 83 ára, lagði ungur maður fyrir hana þessa spurningu: Er það ekki örðugt hlutskipti, Guðríður, að pipra? O-nei, ekki er það, svaraði Guðríður um hæl, en það er að vísu vont á meðan á því stendur.

 


GLERBROTIÐ TALAR EINS OG FULL FLASKA

Jónas Jónsson frá Hriflu og Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur áttu það til að gera athugasemdir hvor við annan. Einu sinni var Jónas að ræða um Sverri við annan mann og sagði: Sko, þó Sverrir sé bara eitt ómerkilegt glerbrot úti á sorphaug mannfélagsins, þá getur hann stundum talað, eins og hann væri full flaska.

VORNÓTT Í AÐALDAL

Fallegt ljóð eftir Jón Baldvinsson f.1878, d.1951 rafveitustjóra á Húsavík, Jón var sonur Baldvins Sigurðssonar bónda og grasalæknis í Garði í Aðaldal, og konu hans Guðnýjar Jónsdóttur, og Jón því uppalinn í Garði í Aðaldal, fannst þetta ljóð eiga vel við, þar sem ég hef búið í rúm tuttugu og átta ár fjarri æskustöðvum í Aðaldal.

                                                                                                     

                                                  Nú líður vorið víði inn,

                                                  af vindum borið í dalinn minn,

                                                  þar björkin grætur í blíðum frið

                                                  við bjartar nætur og vatnanið.

 

                                                   En fuglakliður um flúð og hyl

                                                   og fossaniðir og strengjaspil,

                                                   það eru ljóðin, sem lékst þú mér,

                                                   er lá ég hljóður í faðmi þér.

 

                                                   Þú geymir ennþá mín æskuspor.

                                                   Þótt yfir fenni, það kemur vor.

                                                   Þá blika sundin, en blómið skín,

                                                   sem byrgðist undir hið hvíta lín

                                                   við hóla grundir og hraunin mín.

                                                   Til hinstu stundar ég minnist þín.

 

                                                            Jón Baldvinsson rafveitustjóri á Húsavík

   

EKKI SAMA, HVERNIG RÓIÐ ER

Jóhann Sigvaldason bátasmiður á Húsavík var stangveiðimaður mikill. Einhverju sinni voru þeir að veiða í Laxá, hann og Einar Sörensson, og voru þeir saman á pramma. Laxinn var tregur og beit ekki á hjá Jóhanni, en Einar sat undir árum. Nú skiptu þeir um verk, Jóhann tekur við árum, en Einar kastar. Svo til samstundis hefur Einar fest í vænum laxi. Þá segir Jóhann. Þarna sérðu, Einar góður, það er ekki sama, hvernig róið er.

VINSÆL BLOGG

Var að kíkja á blogg sem ég hef ekki séð áður, þetta blogg er  fjórða vinsælasta bloggið í dag, er með nærri þrjúþúsund heimsóknir, nafnlaust blogg, er búið að setja inn tuttugu og fjórar færslur í dag, allt með fréttum úr mogganum, en einungis sex athugasemdir komnar við þessar færslur, virðist ansi vinsæl blogg sem vísa í moggafrétt án þess að það sé skrifaðar athugasemdir, kannske ætti maður að prófa þetta ef maður vill komast á topp tíu.

Í SVEITINNI

Í sveitinniÍ sveitinniÍ sveitinniÍ sveitinni

Nokkrar myndir úr sveitinni, náði ekki mynd af Eydísi með lömbunum, hún var svolítið smeyk við litlu greyin, set inn fleiri myndir í myndaalbúmið síðar.


GUÐMUNDUR Í BYRGINU

Í framburði fórnarlamba Guðmundar Jónssonar í Byrginu kemur fram að á heimili hans í Háholti í Hafnarfirði var dýflissa sem Guðmundur notaði þegar hann stundaði bdsm kynlíf með skjólstæðingum sínum á meðferðarheimilinu.

Dýflissan var í litlu herbergi í kjallara blokkarinnar sem Guðmundur býr í. Gengið var inn í dýflissuna í gegnum skáp sem er í fremri geymslunni í kjallaranum. Þar var stórt aflangt borð og á því voru margvísleg kynlífstæki. Einnig var þar lítið búr. Í enda herbergisins var plata á vegg með mörgum nöglum sem hægt var að nota til að binda fólk við.

Í gögnum málsins kemur fram Guðmundur sagði einni konunni sem hann braut gegn að hann hefði hannað dýflisuna sérstaklega fyrir hana.  Væri ekki best að loka hann inn í þessari dýflissu sem hann hannaði, væri best að nýta hana þar sem vantar pláss fyrir þá sem bíða afplánunar.

 


VAGNSBÖRN Í BOLUNGARVÍK

c_documents_and_settings_administrator_my_documents_my_pictures_kjarnabud2_527292.jpgc_documents_and_settings_administrator_my_documents_my_pictures_kjarnabud1_527293.jpgFyrirtækið Kjarnabúð í Bolungarvík hefur gert mörg hundruð milljóna króna samning við þýsku ferðaskrifstofuna Kingfischer Reisen um ferðaþjónustu fyrir sjóstangveiðimenn. Samningurinn var undirritaður í hádeginu í dag. Hann hljóðar upp á tæpar 400 milljónir og er til fimm ára. Kjarnabúð hyggst ráðast í framkvæmdir og uppbyggingu fyrir verkefnið fyrir tæpar 300 milljónir á næstu þremur árum. Ætlunin er að byggja um 20 hús og 20 báta til að þjónusta sjóstangveiðimenn á vegum Kingfisher Reisen og verður heildarveltan því 700 milljónir króna. Húsin verða í gömlum burstahúsastíl, með torfþaki og steinhleðslum en að innan verða þau nýtískuleg og búin öllum þægindum fyrir gesti.

Kingfisher Reisen er ein af stærstu evrópsku ferðaskrifstofnuum sem sérhæfa sig í ýmis konar stangveiðiferðum. Kingfisher Reisen hóf rekstur árið 1987 og þjónustar milli 7.500 og 8.000 viðskiptavini á ári sem flestir koma frá Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Til þessa hafa áfangastaðir Kingfisher verið Noregur, Svíþjóð, Írland, Kanada og Alaska og nú bætist við Bolungarvík á Íslandi.

Kjarnabúð ehf. er í eigu Vagnsbarna frá Bolungarvík. Haukur, Hrólfur, Soffía og Ingibjörg Vagnsbörn hafa verið tengd ferðaþjónustu um nokkurra ára skeið. Fyrst með foreldrum sínum við fólksflutninga og þjónustu í tengslum við Læknishúsið á Hesteyri í Jökulfjörðum. Síðar hófu systurnar Ingibjörg og Soffía rekstur íbúðagistingar í Systrablokkinni í Bolungarvík. Haukur rekur gistiheimili og veitingastaðinn vaXon í miðbæ Bolungarvíkur og mun einnig hefja rekstur á 50 tonna eikarbát í ævintýraferðum í sumar. Haukur mun auk þess reka 20 manna farþegabát ásamt Hrólfi til farþegaflutninga milli Bolungarvíkur, Jökulfjarða og Hornstranda. Hrólfur mun ásamt eiginkonu sinni Irisi Kramer og móður þeirra Vagnsbarna, Birnu Pálsdóttur, reka gistingu og kaffihús í Læknishúsinu á Hesteyri í sumar. Glæsilegur samningur hjá þeim Vagnsbörnum, þessi frétt er á www.bb.is  og www.vikari.is í dag.


SLIT Á VEGUM

Ég þyrfti að fara nokkuð margar ferðir á Aygoinum sem er ekki nema 700 kg., til að slíta vegunum eins og einn flutningabíll, fór tvær ferðir í fyrrasumar, Bolungarvík-Húsavík og sá ég mikinn mun frá árinu áður hvað vegirnir eru orðnir slæmir, mikið af rásum og holum í veginum, og frekar verri Brú-Húsavík heldur en Bolungarvík-Brú, er að fara þessa leið fljótlega og get þá borið saman við síðasta ár.
mbl.is Flutningabíll slítur vegum á við 9 þúsund fólksbíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðrik krónprins

Hann kannske skreppur í Eyjafjörðinn og hittir frændfólk sitt, því talið er að Friðrik krónprins forfaðir hans hafi barnað frænku mína er hann kom í heimsókn hingað til lands 1833 og gisti nokkrar nætur á Möðruvöllum, en þar var hún vinnukona.
mbl.is Tignargestir á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hákarla-Jörundur"

Útvegsbóndi í Syðstabæ í Hrísey. fæddur 25. desember, 1826 á Gunnólfsá í Ólafsfirði , lést 1. október 1888  í Hrísey, þetta hefur verið merkilegur karl, eignaðist átján börn með tveimur konum að því sem ég kemst næst í mínu ættfræðigrúski, m.a. var hann langalangafi frænda minna Ásmundar og Stefáns Kjartanssona frá Holti í Reykjadal, miklir tónlistarmenn, en veit ekki hvort þeir hafa nokkuð átt við hákarlaveiðar.


mbl.is Í húsi Hákarla-Jörundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hallgrímur Óli Helgason
Hallgrímur Óli Helgason

fæddur á Húsavík 24.3.1960, uppalin í Húsabakka í Aðaldal til 1980, síðan átt heima í Bolungarvík að undanskyldum sex mánuðum sem ég átti heima á Húsavík 2003-2004, netfangið mitt er sigurbjorgh@simnet.is og hallioli@visir.is

 

239 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 126000

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband